NP Glass 3.4 - Gegnsætt stafrænt veggspjald

NP Glass 3.4 - Bylting í glugga auglýsingum

Háþróuð LED-glerlausn sem lokar ekki á birtu. Fullkominn fyrir verslanir sem vilja auglýsa á áhrifaríkan hátt án þess að skyggja á útsýni. Nútímaleg hönnun. Hátt birtustig og mikið gegnsæi.

Auðvelt er að uppfæra efni í rauntíma, samstilla marga skjái og stjórna auglýsingum miðlægt fyrir verslanir á mismunandi stöðum.

Mikil upplausn

Með hárri upplausn skilar NP Glass glæsilegum, hágæða myndum sem haldast skýrar og líflegar, þannig að efnið þitt fær aukna athygli í hvaða umhverfi sem er.

Örþunnur - 7mm

Fellur áreynslulaust inn í hvaða umhverfi sem er. Er í 16:9 hlutföllum, sem gerir það auðvelt að endurnýta myndefni.

Hátt birtustig

4500 nit. Er áberandi jafnvel í beinu sólarljósi. Hann hentar fullkomlega fyrir verslanir og önnur rými þar sem auglýsingar þurfa að skera sig úr, óháð birtuskilyrðum.

Sterk og endingargóð hönnun

Hert gler með lagskiptingu veitir öfluga vörn gegn höggum og blettum, auk þess sem slétt yfirborðið er auðvelt að þrífa. Þessi blanda af styrkleika og þægindum gerir NP Glass að frábæru vali fyrir verslanir.

NP Glass - Ný kynslóð stafrænna auglýsingaskilta

Af hverju velja gegnsætt auglýsingaskilti?

NP Glass kemur í stað hefðbundinna útprentaðra veggspjalda og býður upp á snjallari, skilvirkari og áhrifaríkari auglýsingalausn.

Auglýsingar birtar samstundis – Þegar auglýsingin er tilbúin frá hönnuði er hægt að setja hana strax í loftið.
Skýjatengd stjórnun – Uppfærðu auglýsingar hvar sem er og samstilltu skjáina í mismunandi verslunum á augabragði.
Sjálfvirk stjórnun – Skjárinn kveikir og slekkur á sér sjálfkrafa, án þess að starfsfólk þurfi að hafa afskipti af honum.
Virkni allan sólarhringinn – Getur verið í gangi 24/7
Hátt gegnsæi – Hleypir birtu í rýmið og leyfir viðskiptavinum að horfa út um gluggann.
Margar auglýsingar á sama fleti – Sýnir ljósmyndir, myndbönd og önnur markaðsefni án takmarkana.
Sést vel í dagsbirtu – Með 4500 nit birtustigi tryggir skjárinn að auglýsingar sjáist vel, jafnvel í beinu sólarljósi.
Sjálfvirk birtustjórnun – Skjárinn lækkar birtustig þegar fer að dimma, annað hvort með tímastýringu eða ljósnema.
Auðvelt að skipta um efni – Ný auglýsingaherferð á hverjum degi er engin fyrirstaða.
Mikil athygli – Áhugaverð tilboð fara ekki framhjá neinum vegna birtunnar.
Tímasettar auglýsingar – Hægt er að stilla skjáinn til að birta sérstök tilboð á ákveðnum dögum, t.d. þriðjudagstilboð.

Ókostir útprentaðra veggspjalda

❌ Þegar auglýsing er tilbúin frá hönnuði, þá þarf að senda í prentun.
❌ Dreifing á veggspjöldum út á land getur tafist og aukið kostnað.
❌ Stór prentuð spjöld draga úr birtu í rýminu.
❌ Prentuð veggspjöld geta aðeins sýnt eina mynd í einu.
❌ Hefðbundnar auglýsingar sjást illa í gluggum þegar dimmir.
❌ Lítil sveigjanleiki – prentaðar auglýsingar eru sjaldan uppfærðar vegna fyrirhafnar og kostnaðar.

Tækniupplýsingar